top of page

10 ára afmæli

28. Febrúar
Takið daginn frá!

DAGSKRÁ

27. febrúar

Einkatímar með erlendum kennurum í gegnum Zoom!

Christi Allen Franchini & Lauren Stephen ætla að bjóða uppá einkatíma (einnig möguleiki á dúó tímum) í gegnum Zoom þar sem kennari frá Eldrún pilates studio mun einnig vera til staðar og aðstoða við túlkun og vera hendur ef með þarf. Við munum einnig sjá um tölvur/síma og annað til að setja tímann upp. Þetta er frábært tækifæri til að öðlast enn dýpri skilning á pilateskerfinu með aðstoð level 3 kennara. Hér að neðan er nánari lýsingu og verð. Takmörkuð pláss í boði! 

28. febrúar

Kl. 10:00 - 11:30 Masterclass með Marjorie

Taktu þátt í einstökum masterclass tíma! Þessi dýnutími hentar öllum getustigum, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn. Tíminn fer fram í gegnum Zoom, þar sem Marjore mun gefa persónulegar leiðbeiningar, og kennarar Eldrún Pilates Studio verða einnig til staðar til að aðstoða. Frábært tækifæri til að læra af þaulreyndum kennara og dýpka færni þína í pilates.

Marjorie Oron

Senior Master Instructor

Fyrrverandi atvinnudansari sem nam við Rotterdam Dance Academy og dansaði meðal annars með Dance Theatre of Harlem í New York. Eftir alvarleg ökklameiðsli kynntist hún Romana Kryzanowska og True Pilates, sem kveikti ævilanga ástríðu hennar fyrir Pilates og leiddi til þess að hún varð kennari undir beinni handleiðslu Romana. Árið 1994 opnaði hún fyrsta viðurkennda Pilates-stúdíóið í Evrópu og stofnaði jafnframt fyrsta sanna Pilates kennaranámið þar.

Verð: 4000.- ISK

kl. 12:30 - 14:00 "Love all around" dýnutími

Frír pilates tími með Elínu Ósk og Heiðrúnu 

A.T.H. takmörkuð pláss í boði. Það er nauðsynlegt að skrá sig.

Kl. 19:00 - 22:00

Fruit And Cheese Platter

Kokteilboð

Við bjóðum kúnnum okkar í skemmtilegt kokteilboð í stúdíóinu! Boðið verður upp á freyðivín og pinnamat. Nánari upplýsingar koma síðar

 

– Við hlökkum til að sjá ykkur!

erlendir kennarar

Kennarar sem bjóða uppá einkatíma í gegnum Zoom

Christi Allen Franchini

Level 3 Senior Teacher Trainer 2023

Christi er Romana’s Pilates kennari með yfir 22 ára reynslu í heilsu- og vellíðunariðnaðinum. Með djúpri þekkingu styður hún bæði nemendur og skjólstæðinga til að efla líkamlega og andlega heilsu á heildrænan hátt. Fyrir Christi er Pilates ekki aðeins líkamsþjálfun, heldur lífsbreytandi leið að betri vellíðan og endurnýjun. Christi hefur heimsótt okkur hjá Eldrún pilates studio áður og sló í gegn hjá nemendum og kennurum.

  • Instagram
Verð: 22.000.- ISK

Bókanir og nánari upplýsingar eldrunpilates@gmail.com

Screenshot 2026-02-02 at 11.31.09.png

​Fáir tímar í boði!

Lauren Stephen

Romana’s Pilates Senior Instructor Trainer í 30 ár

Lauren Stephen er stofnandi og eigandi Pilates Seattle International (PSI) og einn virtasti Senior Instructor Trainer innan Romana’s Pilates með áratuga reynslu af kennslu og þjálfun. Hún hóf Pilates-nám sitt árið 1991 undir leiðsögn Romana Kryzanowska og hefur síðan helgað sig því að miðla arfleifð Joseph Pilates með skýrri kennsluaðferð, djúpri hreyfiþekkingu og háum gæðastöðlum. Í gegnum PSI hefur Lauren mótað og menntað kynslóðir kennara og stutt skjólstæðinga á öllum æviskeiðum til varanlegra og umbreytandi breytinga.

  • Instagram
Verð: 19.000.- ISK

Bókanir og nánari upplýsingar eldrunpilates@gmail.com

Screenshot 2026-02-02 at 10.53_edited.jpg
  • Facebook
  • Instagram

© 2025 Eldrún pilates studio. Skipholt 50b, 105 Reykjavík.

bottom of page