
Einkatímar
Sérhannaðir tímar miðað við líkama hvers og eins. Notast er við allan tækjabúnað stúdíósins.

TOWER
Hámark þátttakenda er 7. Unnið er á pilatestæki sem kallast tower unit ásamt því að nota minni tæki svo sem létt lóð, magic circle ofl.

STUDIO
Hámark þátttakenda er 6. Notast er við allan tækjabúnað stúdíósins. Einu sinni í viku eru allir saman í tower tíma og einu sinni í viku eru tríó tímar.
Hópnámskeið
TOWER: 45.000.-
5-7 í hóp
2x í viku í 5. vikur
STUDIO: 52.500.-
6 í hóp
2x í viku í 5. vikur
Athugið!
Við bjóðum uppá þann möguleika að ef kúnni missir úr tíma á sínu námskeiði þá er hægt að mæta aukalega á önnur námskeið. Einungis er hægt að vinna upp tíma á meðan námskeiðið sem viðkomandi er skráður í er í gangi. Við mælum ekki með því að fólk mæti á hærra erfðleikastig en námskeiðið sem viðkomandi er á.
07:00 TOWER II
Frábærir tímar til að hefja daginn, fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Áhersla á að styrkja djúpvöðva og byggja langa granna vöðva. Ásamt réttri líkamsstöðu og auknum liðleika.
SUMAR námskeið 2. vikur
Mánudaga & miðvikudaga
Nýtt námskeið hefst 14. Júlí
Verð 18.000 kr
Kennari: Ragnhildur
8:00 - 8:50 TOWER I
Grunnnámskeið
Hressandi námskeið fyrir morgunhana. Hentar vel fyrir byrjendur og fólk sem þarf að passa uppá líkama sinn. Unnið í grunn og kjarnaæfingum pilateskerfisins. Hentar öllum aldurshópum.
SUMAR námskeið 3. vikur
Mánudaga & miðvikudaga
Nýtt námskeið hefst 30. Júní
Verð 27.000 kr
Kennari: Elín Ósk
9:00 - 9:50 TOWER III
Framhaldsnámskeið, unnið í kjarnæfingum pilates.
Námskeiðið er fyrir þá sem hafa farið í pilates áður eða eru með góða líkamsmeðvitund og í góðu formi. Gerðar eru krefjandi æfingar en fleiri en ein útgáfa í boði af æfingum svo hver og einn getur unnið útfrá eigin getu.
Þriðjudaga eru 6 í hóp og unnið er á TOWER unit tækum.
Föstudaga eru 3 í hóp og unnið er á öllum tækjabúnaði stúdíódins(Reformer, wunda chairs, spine corrector...)
Þetta námskeið er komið í sumarfrí!
Hefst aftur vikuna 11. Ágúst
Þriðjudaga & Föstudaga
Kennari: Heiðrún
12:05 - 12:55 STUDIO III
Námskeið fyrir lengra komna í pilates og íþróttafólk
Þriðjudaga eru þrír í einu í tíma og unnið er á öllum tækjabúnaði stúdíósins(Reformer, wunda chairs, spine corrector...) og á fimmtudögum eru hóptímar, 6 í hóp, og unnið á TOWER unit tækjum.
SUMAR námskeið 5. vikur!
Þriðjudaga & fimmtudaga
Nýtt námskeið hefst 10. Júní
Verð 52.500 kr
Nýtt námskeið hefst aftur vikuna 11. Ágúst
Kennarar: Elín Ósk & Heiðrún
12:05 - 12:55 TOWER I
Á þessu námskeiði er unnið í grunn- og kjarnæfingum pilates kerfisins. Það er bæði fyrir þá sem ekki hafa farið í pilates áður og einnig þá sem vilja dýpka skylninginn á æfingunum. Farið er rólega og djúpt.
Þetta námskeið er komið í sumarfrí!
Hefst aftur vikuna 11. Ágúst
Kennari: Heiðrún & Ragnhildur
12:05 TOWER KARLAR
Námskeið fyrir karlmenn á öllum aldri. Frábært til að auka liðleika og styrk. Mjög gott til að hjálpa með árangur í öðru sporti. Á þessu námskeiði er unnið í grunn- og kjarnæfingum pilates kerfisins. Það er bæði fyrir þá sem ekki hafa farið í pilates áður og einnig þá sem vilja dýpka skylninginn á æfingunum. Fullkomið að nota hádegistímann til að klára hreyfingu dagsins.
Námskeiðið er í pásu, endilega hafið samband við Elínu Ósk eða Ragnhildi ef þú hefur áhuga á þessu námskeiði.
Kennari: Elín Ósk & Ragnhildur

